149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:49]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Í umræðunni sem staðið hefur um skeið er ljóst að ríkisstjórnarflokkarnir tala gegn sinni eigin grasrót. Það fer heldur ekki fram hjá neinum sem fylgjast með samfélagsmiðlum að þar geisar stormur. Þar talar gegn þriðja orkupakkanum fjöldinn allur af trúnaðarmönnum allra ríkisstjórnarflokkanna. Að sjálfsögðu er það þingmannsins hverju sinni hvernig hann fer með umboð sitt. En ég verð, hæstv. forseti, að vitna í ályktanir þriggja stjórnmálaflokka og leyfa mér að vekja athygli á að af þessum þremur ályktunum er aðeins einn stjórnmálaflokkur sem framfylgir stefnu síns flokks. Ályktanir stjórnmálaflokkanna um orkumál, með leyfi hæstv. forseta:

„Framsóknarflokkurinn stendur vörð um fullveldi Íslands í orkumálum og hafnar því að orkulöggjöf Evrópusambandsins verði tekin inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.“ — Þetta er á flokksþingi Framsóknarflokksins í febrúar 2018.

„Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“ — Þetta kemur fram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í mars 2018.

„Miðflokkurinn stendur vörð um fullveldi, sjálfstæði og auðlindir þjóðarinnar. Flokkurinn vill treysta forræði þjóðarinnar yfir auðlindum sínum og mun leggjast gegn samþykkt þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Flokkurinn samþykkir hvorki afsal á fullveldi Íslendinga yfir orkuauðlindinni né fyrirsjáanlega hækkun á raforkuverði hér á landi.“ — Þetta kemur fram á flokksráðsfundi Miðflokksins 30. mars 2019.

Hæstv. forseti. Það vekur athygli offorsið og lætin við að koma þessu máli í gegn þegar jafn margir og raun ber vitni hafa áhyggjur af málinu. Samkvæmt skoðanakönnunum er það meiri hluti þjóðarinnar. Það hefur hingað til reynst vel að þjóðin hafi eitthvað um hlutina að segja. Í þessu samhengi ætla ég mér að vitna í grein Arnars Þórs Jónssonar í Morgunblaðinu þann 28. maí 2019, með leyfi hæstv. forseta:

„Fyrirvarar Alþingis munu engu skipta þegar búið verður að fjármagna þennan sæstreng (hvort sem það verður innlent eða erlent fyrirtæki sem gerir það). Ástæðan er sú að ef íslenska ríkið reynir þá enn að standa í vegi fyrir því að strengurinn verði lagður mun verða höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi. Íslenska ríkið mun augljóslega tapa því máli þar sem orka er vara, samanber fjórfrelsisákvæðið um frjálst flæði á vörum …“

Hér tjáir enn einn lögfróður maðurinn sig. Þess vegna spyr ég: Er ekki vafinn það mikill að við verðum að staldra við? Eins og margoft hefur komið fram, er ekki betra að stíga varlega til jarðar og fresta málinu?

Hér er verið að reyna að fá þingsályktunartillögu samþykkta. Forseti Íslands mun enga aðkomu hafa að málinu vegna þess að þetta kemur fram í þingsályktunartillögu en ekki frumvarpi. Það reynir mjög á samvisku hvers þingmanns fyrir sig. Hver þingmaður hefur að sjálfsögðu unnið drengskaparheit að stjórnarskrá Íslands. Þingmanni ber umfram allt að virða stjórnarskrána. Ég lít svo á að mér beri sem þingmanni að stíga varlega til jarðar, stjórnarskráin liggur undir. Mér líkar illa að þurfa að sitja undir því, líkt og ég hef verið sem og flokksmenn mínir, að vera úthrópaður einangrunarsinni og popúlisti eða eitthvað þaðan af verra.