149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[08:01]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir seinna andsvarið. Þingmaðurinn kom inn á það að málið sé flókið og hafi verið mjög flókið fyrir okkur þegar við komum að því fyrst. Þegar það flækjustig fór að vefjast fyrir mér — ekki er ég góður í lögfræði eða neinu slíku — nálgaðist ég málið frá annarri hlið, sem sagt bara sem venjulegur Íslendingur úti á landi sem vill landi sínu og þjóð og náttúru vel. Og þá skýrðust hlutirnir fyrir mér; þetta snýst um náttúruauðlindina, vatnsorkuna, jarðvarmann og það að við höfum umráðarétt yfir okkar náttúruauðlindum. Í því ljósi nálgast ég málið, þ.e. frá því sem ég horfi á það með þeim gleraugum sem ég nota við það og út frá því tala ég. Lögfræði er ekki mín sterka hlið, en ég hlusta á fræðimenn í því sambandi.

Í sambandi við hreina orku og ESB og þá spurningu erum við líka komin að því sem við erum að fást við, þ.e. loftslagsmálin, og hvaða stefnu við Íslendingar ætlum að taka í því hvað okkur varðar, að standa vel að þeim málum. Þá er gott að vera ótengdur við óhreina orku erlendis frá og þar fram eftir götunum. Það er eitthvað sem framtíðin ber í skauti sér, hvernig við getum landað þeirri afgreiðslu á þeim málum. En það er ekki til umræðu hér og nú heldur erum við að ræða orkupakkann, en hann tengist óneitanlega inn í þá umræðu og er (Forseti hringir.) örugglega mikið um það í orkupakka fjögur.