ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er reyndar eitt atriði í viðbót sem ég gat ekki um í ræðu minni sem skiptir vissulega máli og var ekki þekkt fyrir tveimur vikum síðan. Það er sú staðreynd að orkupakki fjögur hefur litið dagsins ljós og það hefði kannski verið, ekki bara kannski heldur hefði verið óheppilegt, svo að maður sé kurteis, að vera búinn að bindast þessu bandalagi meiri og nánari böndum og standa svo uppi með það að vera allt í einu orðið áskrifandi að orkupakka fjögur án þess að þjóðin fengi neitt um það að segja.
Það er þannig að allmargir aðilar hafa sagt að fyrirvararnir sem settir eru beri í sér þá óvissu að það gæti orðið til þess að þeir verði haldlitlir mjög þegar það gæti komið til þess að hér yrði farið í mál við íslenska ríkið. Það gæti orðið okkur til stórtjóns.
Það eru mjög margir aðilar sem hafa varað við því, hafa varað stjórnvöld við því. Ég var síðast undir morgun eða einhvern tímann í gærkvöldi að fara yfir umsögn þess manns sem þekkir EES-samninginn einna gerst. Ég var að fara yfir umsögn Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi hv. þingmanns og hæstv. ráðherra, þar sem hann tekur undir það sem líklega fjórir til fimm lögspekingar hafa komist að, að fyrirvararnir sem settir eru við þetta mál eru ekki túkalls virði. Þeir munu ekki verða það. Og það mun fara þannig að ef við lendum í málaferlum verður málinu kastað út, alla vega á þeim forsendum einum að fyrirvararnir standist ekki.