ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir. Það er nefnilega dálítið sérstakt að sú stjórnarandstaða sem er hér á landi er skipuð mörgum Evrópusinnuðum flokkum sem vilja allt gera til að koma okkur í Evrópusambandið — það eitt hefði átt að vekja ríkisstjórnarflokkana til vits um að það væri kannski ekki neitt sérstaklega sniðugur stuðningur við málið, hefði alla vega átt að slá einhverja varnagla, að við værum á einhverri leið sem ekki er vitað hvernig endar. Nefna má að grein Þorsteins Pálssonar er um það að við séum að stíga skref inn í ESB og hann fagnar því, sem ætti eitt og sér að vera mjög umhugsunarvert.
Hv. þingmaður nefndi skrif Arnars Þórs Jónssonar lögmanns sem eru mjög góð að mínu mati af því að hann telur réttast að við stöldrum aðeins við og förum rétta lögfræðilega leið í málinu. Enda hefur það komið fram að fjárfestar í Bretlandi eru mjög svo áfram um að leggja sæstreng og segja að það muni skapa mörg hundruð störf á norðausturhluta Englands. Það eru 25 fjárfestar sem koma að því máli.
Það er því alveg gríðarlega mikið í húfi og ekki gáfulegt að keyra málið í gegnum þingið eins og staðan er núna, heldur eigum við einmitt að taka alla þá þræði sem við höfum varpað hér fram og ná utan um málið til að geta tekið réttu lögformlegu ákvarðanirnar þannig að við fáum þetta hreinlega ekki bara í bakið.