ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Það er einmitt mergurinn málsins að þegar Arnar Þór Jónsson, sá ágæti lögspekingur og héraðsdómari, kom fram með færslu sína daginn eftir að forsætisráðherra hafði úttalað sig um það að enginn lögfræðingur væri á þessari skoðun þá bættist hann í hóp þeirra sem á undan voru, eins og við höfum verið að tala um, en hefur ekki farið mikið fyrir í umræðunni vegna þess að svo virðist sem utanríkismálanefnd hafi handvalið þá sem voru þess verðir að láta getið í nefndaráliti meiri hluta. Fyrir utan það fékkst ekki að kalla til alla þá sem vilji var fyrir að kalla fyrir nefndina. Á einhverjum tímapunkti var bara klippt á það og sagt að nú yrði málið rifið út, vegna þess að mönnum lá lífið á við að koma málinu í gegnum þingið áður en það uppdagaðist að fjórði orkupakkinn væri mættur, áður en það uppdagaðist að sæstrengurinn væri í burðarliðnum og nánast klár til að leggja hann niður, áður en það uppdagaðist að það væru kannski fleiri en einn eða tveir sem væru þeirrar skoðunar að fyrirvararnir sem við höfum sett sjálf, þ.e. ríkisstjórnin og fylgifiskar hennar, væru ófullnægjandi. Eins og ég sagði lá það ekki eins gaumgæfilega fyrir fyrir tíu dögum síðan og núna en á þeim tíu dögum ætlaði ríkisstjórnin sér að keyra þetta mál í gegnum Alþingi í blóra við meirihlutavilja þjóðarinnar.