149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[09:04]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni fyrir ræðuna. Það var áhugavert innlegg rafvirkjans að fá umræðu um orkutap. Ég velti fyrir mér í samhengi við það að hér er verið að ræða þessi mál á grundvelli þess að raforkan er skilgreind sem vara, hvort þingmaðurinn muni í fljótu bragði eftir annarri vöru, sem skilgreind er sem slík, sem rýrni með sambærilegum hætti og raforkan gerir við lengri flutning eins og hér um ræðir. Maður þekkir sögur af því að menn hafi pantað skyrtu frá Ítalíu og að tvær hægri ermar hafi verið á skyrtunni en ég hef aldrei heyrt nein dæmi þess að það vanti ermi eða kraga eða eitthvað svoleiðis. Þá er varan bara gölluð. En það er áhugavert að vita hvort þetta sé hugsanlega eina varan sem sé þess eðlis að hún rýrni með þeim hætti sem rafmagnið gerir við flutning yfir langan veg. Man þingmaðurinn eftir annarri vöru sem það á við um?

Þetta var nú útúrdúr, en það sem mig langaði til að spyrja hv. þingmann út í eru þau sjónarmið sem hann setti fram um að rétt væri að flýta sér hægt og fresta málinu fram á haust til að mönnum, stjórnvöldum og bæði stuðningsmönnum og efasemdarmönnum um innleiðinguna, gæfist tími til að kafa betur ofan í undirliggjandi gögn og röksemdir. Nú var hv. þingmaður að koma inn eftir stutt leyfi en ég spyr: Hefur hann heyrt eitthvað í umræðunni sem mælir gegn því að málið frestist fram á haust?