ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni fyrir svarið. Ég ætla aðeins að koma betur inn á það sem hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni og snýr að því hvernig málið hefur verið lagt upp hvað hraða varðar í vinnslu þess. Nú geri ég ráð fyrir að hv. þingmaður hafi eins og aðrir veitt því athygli að síðasta haust virtist enginn asi vera á málinu. Ráðherrar, fyrst hæstv. utanríkisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson og síðan hæstv. iðnaðarráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, lýstu því yfir í nóvember sl. hvort sinn daginn í viðtali í Morgunblaðinu að ekki lægi á. Hæstv. ráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson lýsti þá strax yfir frestun fram á vorþingið, hæstv. ráðherra Þórdís Kolbrún Gylfadóttir lýsti yfir fyrirsjáanlegri frestun fram á haustþingið 2019 og í orðunum lá í sjálfu sér að það gæti frestast lengur.
Veit hv. þingmaður hvenær þessi breyting varð, þ.e. að svona skyndilega hafi legið á því að koma málinu í gegn og þessi fyrirvaranálgun var kynnt, sem fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins hefur kallað lofsverðar blekkingar í málinu? Þekkir hv. þingmaður hvernig þessu er háttað, hvenær asinn kom til?