ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég er á dálítið sömu slóðum og hv. þm. Bergþór Ólason var hér áðan, ég hef verið að leita mér að ástæðum fyrir þeim asa sem er á þessu máli. Þess vegna langar mig til að fara aðeins ofan í það með hv. þingmanni af hverju hann er. Komið hefur fram núna að ef þetta mál hefði bara runnið í gegnum þingið, eins og vilji ríkisstjórnarflokkanna og fylgihnatta hennar stóð til, værum við nú með samþykkta þingsályktunartillögu í höndunum, en hefðum að henni samþykktri fengið upplýsingar um að fjórði orkupakkinn væri kominn, að sæstrengur væri í bakgarðinum hjá okkur, að fleiri og fleiri lögmenn kæmu fram og segðu að fyrirvarar okkar í þessu máli væri ónýtir.
Mig langar aðeins til að spyrja hv. þingmann að því hverja af þessum ástæðum telji hann líklega skýringu á því að menn hafi talið sig þurfa að flýta sér eins og raun ber vitni. Eru það upplýsingarnar um að fjórði orkupakkinn sé mættur? Eru það upplýsingarnar um að fleiri og fleiri lögmenn segi að fyrirvararnir séu ónýtir? Eða eru það upplýsingarnar um að sæstrengurinn sé tilbúinn og geti verið á leiðinni hingað innan tíðar? Eru það ástæður fyrir því að ríkisstjórnin vildi lauma þessu máli í gegnum þingið á jafn miklum hraða og raun ber vitni?