ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir þetta andsvar. Áfram tölum við um skoðanir á því hverju þessi asi sæti. Það er góður punktur hjá þingmanninum varðandi orkupakka fjögur vegna þess að það hefur reynst rétt að hann er í smíðum og er komin upp alveg þokkaleg beinagrind af honum sem má geta sér til um að segi hvað í honum býr. Ef hér er verið, eins og þingmaðurinn kom inn á, að lauma orkupakka þrjú í gegn áður en við gerum okkur grein fyrir því hvað er í orkupakka fjögur — og við höfum verið að kalla eftir því að fá að skoða hann fyrst. Það er ein ástæðan fyrir því að við viljum fresta málinu, því að við viljum vita hvaða afleiðingar orkupakki þrjú hefur gagnvart orkupakka fjögur. Ég get alveg samþykkt að það sé það sem fylgjendur málsins vilja, að við náum ekki að skoða hvað er í orkupakka fjögur vegna þess að það gæti skýrt það að ef við samþykkjum orkupakka þrjú eins og hann er borinn á borð, komi upp sú staða að við séum í miklum vanda, eins og við höfum verið að velta upp í þeim áhyggjum sem við höfum af því að t.d. fyrirvararnir haldi ekki, séu ekki túkalls virði og þar fram eftir götunum.