149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[09:21]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Frú forseti. Í einni af myndunum um bleika pardusinn er komið með sendingu til Clouseaus rannsóknarlögregluforingja og það er pakki sem tikkar. Menn velta þessum pakka svolítið á milli sín þangað til að einn hrópar upp yfir sig: Sprengja. Annar segir: Hvernig sprengja? Sú sem springur, eða á ensku: „The exploding kind,“ með leyfi forseta. Að mörgu leyti má segja að með þeim orkupakka sem nú er verið að lauma í gegnum þingið eða reyna að lauma í gegnum þingið gegn örlitlum hógværum mótþróa sé verið að bera á borð afurð sem ríkisstjórnin og fylgihnettir hennar og ríkisstjórnarflokkarnir eru ekki almennilega vissir um hvernig virka. Ríkisstjórnin er í vafa um það hvort fyrirvarar haldi. Ríkisstjórnin er í vafa um það að afurðin standist stjórnarskrá og samt sem áður heldur ríkisstjórnin áfram og ríkisstjórnarflokkarnir og fylgihnettir hennar, heldur áfram á þeirri vegferð í blóra við meirihlutavilja þjóðarinnar með vitneskju um að alþýðusamtökin í landinu, sem telja 130.000 manns, eru á móti þeim gerningi. Nokkrir verkalýðsleiðtogar hafa stigið fram og lýst sig andvíga og sumir hafa fengið bágt fyrir vegna þess að menn hafa haldið að þeir væru Miðflokksmenn. Þetta sýnir kannski þá skoðanakúgun sem ríkir og þá þöggun sem á að beita til þess eins að geta laumað þessum pakka í gegnum Alþingi í óþökk þjóðarinnar.

Ég verð að segja, frú forseti, að það er mjög alvarlegt þegar nafnkenndir einstaklingar sem eru opinberar persónur geta ekki opinberað hug sinn til einstakra mála í landinu vegna þess að þeir eru þá grunaðir um að tilheyra ákveðnum stjórnmálasamtökum. Þetta minnir á tíma í Bandaríkjunum milli 1948/1949 og svo 1957–1959 þar sem menn voru settir út af sakramentinu fyrir það að vera grunaðir um að vera kommúnistar. Þá fengu menn spurningar fyrir þingnefndum þar sem sagði eitthvað á þessa leið: Eruð þér, hafið þér einhvern tímann verið eða hafið þér hugsað yður að vera kommúnisti? Það að það skuli „ekki mega“ opna hug sinn í þessu máli án þess að verða fyrir köpuryrðum opinberlega er gríðaralvarlegur hlutur. Það sýnir kannski hversu þéttriðið net nokkurs meiri hluta Alþingis er, þ.e. menn hafa talað mikið um þingviljann en þjóðarviljinn virðist vera annar í þessu máli, að mér þykir. Það stappar næst því að vera óþolandi þegar fólk á Íslandi getur ekki opinberað skoðanir sínar á stórum málum sem varða þjóðina miklu til nútíðar og framtíðar án þess að verða nánast fyrir mannorðsmissi af því. Ég held að það sé tími til kominn, frú forseti, að mál þetta sem er býsna umdeilt verði lagt til hliðar um sinn og því verði frestað fram á haust þannig að hægt sé að vinna það betur og hugsanlega vinna fylgi (Forseti hringir.) með því meðal þjóðarinnar.