ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að segja að þegar ég talaði um agann í VG gleymdi ég því ekki að þungavigtarmenn þess flokks og sómamenn eins og Ögmundur Jónasson, hv. fyrrverandi þingmaður, og Hjörleifur Guttormsson, sömuleiðis hv. fyrrverandi þingmaður, hafa stigið fram á mjög myndarlegan hátt og sagt skoðun sína á þessum orkupakka, svo að það sé alveg klárt að ég er ekki að gera lítið úr því að þeir hafi sýnt þann kjark, þá einbeitni og það prinsipp að stíga fram út af þessu máli.
Sé ég eitthvað gott í þessum pakka? Í stuttu máli sagt: Nei. Eins og hann er búinn af hálfu þessarar ríkisstjórnar er hann ekki bara slæmur, ég held því fram að hann sé beinlínis hættulegur. Ég held að það fyrirvaraleysi og andvaraleysi sem ríkisstjórnin og fylgifiskar hennar sýna í þessu máli geti haft mjög alvarlegar og dýrkeyptar afleiðingar fyrir íslenska þjóð. Það er kannski þess vegna sem sá hópur, sem haldið hefur uppi nokkru andófi hér um skamma hríð og hyggst halda því áfram eins lengi og þarf, reynir með því móti að hafa áhrif á ríkisstjórnarflokkana og fylgihnetti þeirra til góðs. Enn sem komið er, er árangurinn ekki mikill, en ég ber þá von í brjósti að skynsemi þessa fólks sigri eða komi í ljós og að það muni draga þetta mál til baka (Forseti hringir.) og geyma það a.m.k. til haustsins.