149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[09:38]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar fyrst að gera athugasemd við það að forseti skyldi ekki hafa á reiðum höndum númerið á andsvari sem hv. þingmaður bar hér fram. Það gæti verið til bóta ef þær upplýsingar verða tíndar saman.

Man ég eftir þessu á árunum 2013–2016? Nei, ekki í fljótu bragði, ég man ekki eftir því þó að þá hafi ýmislegt verið að gerast. Ég man t.d. eftir því að mjög hatrömm umræða var um veiðigjaldafrumvarp sem var nákvæmlega sama marki brennt og frumvarp sem Vinstri græn stóðu fyrir á þessu yfirstandandi þingi. Ég man eftir að sú umræða var mjög hörð og ég man eftir að þá stigu ýmsir fram þvert á flokka og voru sammála prinsippinu sem það frumvarp innifól, en ég man ekki eftir því að það fólk hafi mætt svona illindum út af afstöðu sinni. Ef við horfum á það er það náttúrlega út af fyrir sig alvarlegt ef það á að verða norm hér að skoðanakúgun sé beitt og þöggun þannig að fólk þori ekki að tjá hug sinn. Það er mjög alvarlegt og ég held að menn ættu að hugsa sig um sem standa fyrir slíku. Hvort sem þeir eru á netmiðlum, samfélagsmiðlum eða hvernig sem það er, held ég að menn ættu að skoða hug sinn vandlega áður en lengra er gengið í þeim efnum.