149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[09:49]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Í ræðu minni ætla ég að fá að koma inn á það atriði sem snýr að spurningu sem grundvallastast á almennri skynsemisskoðun á þeirri stöðu sem uppi er, það er að reyna að átta mig á svarinu við spurningunni: Ef það er ekkert í þessu máli, ef það er svona einfalt, ómerkilegt og hættulítið, af hverju þá þessi læti?

Það vekur furðu margra og vantraust og ýtir undir þá tilfinningu að eitthvað sé í málinu sem menn, sem stýra þinghaldinu, og ráðherrann, sem leggur þingsályktunartillöguna fram, meta sem svo að best sé að klára með öllum tiltækum ráðum, að illu sé best aflokið, ef svo má segja.

Ef ekkert væri í þessu máli, eins og lýst hefur verið, engar hættur, engar mögulegar uppákomur, búið að hnýta alla hnúta og svara öllum mögulegum spurningum, væri það einföld ákvörðun að taka málið af dagskrá tímabundið, hleypa öðrum mikilvægum málum á dagskrá þingsins eða þá hitt að fresta málinu fram á haust, leyfa rykinu aðeins að setjast og reyna þá að leiða okkur efasemdamönnunum það fyrir sjónir að áhyggjur okkar séu óþarfar.

Engir tilburðir eru gerðir til að nálgast málið með slíkum hætti. Ef eitthvað er er bætt í óvissuþættina. Hér koma jafnt og þétt upp atriði sem þarfnast skýringa og ekki fást svör við. Hæstv. ráðherra mætti hér loksins sl. föstudag til viðræðna við þingmenn í á þriðja tíma, fór síðan aftur til útlanda, ef ég skildi það rétt. Sú heimsókn skilaði þeirri niðurstöðu að efasemdamennirnir höfðu enn meiri efasemdir en áður var, þannig að ekki tókst það eins og ráð var fyrir gert.

Það er mannlegt eðli að upplifa það sem svo að þegar mótaðili reynir, hvert sem málið er, með öllum tiltækum ráðum að koma sér undan því að ræða mál efnislega, komi nýjar upplýsingar fram, setji undir sig hausinn eins og gert hefur verið í þessu máli og segi það eitt: Þetta mál skal klárað í þeirri atrennu sem við nú erum í og það verður útrætt án þess að neitt svigrúm verði gefið í tíma til að skoða og rýna gögn betur en þegar hefur verið gert.

Þetta er ámælisvert í því samhengi að öllum er ljóst í dag að þingmenn stjórnarflokkanna sættu sig við, eða skiptu sumir hverjir um skoðun, er réttara að orða það, á grundvelli þessarar meintu fyrirvaraleiðar. Í skrifum héraðsdómarans Arnars Þórs Jónssonar í fyrradag, segir, með leyfi forseta:

„Fyrirvarar Alþingis munu engu skipta þegar búið verður að fjármagna þennan sæstreng … Ástæðan er sú að ef íslenska ríkið reynir þá enn að standa í vegi fyrir því að strengurinn verði lagður mun verða höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi. Íslenska ríkið mun augljóslega tapa því máli þar sem orka er vara, samanber fjórfrelsisákvæðið um frjálst flæði á vörum.“

Það að hæstv. utanríkisráðherra og aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar sem málið tengist með einum eða öðrum hætti eða þingmenn sem styðja við þessa innleiðingu sjái enga ástæðu til þess að ræða þetta sjónarmið í ljósi þess að hinir meintu fyrirvarar eru kjarnaatriði í því að málið (Forseti hringir.) fékkst samþykkt, þykir mér með fullkomnum ólíkindum.