149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[10:01]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni andsvarið. Til að reyna að ramma inn svarið við þessari spurningu ætla ég að nefna þau þrjú atriði sem ættu helst að vekja menn til umhugsunar um nauðsyn þess að skoða málið betur. Í fyrsta lagi er það hversu illa fyrirvararnir virðast grundaðir. Í öðru lagi eru það fréttir í Sunday Times sl. sunnudag, frekar en mánudag, um þrýsting breskra fjárfesta á að koma sæstrengsmálum af stað og í þriðja lagi eru það sjónarmið héraðsdómara, Arnars Þórs Jónssonar, sem komu fram fyrir tveimur sólarhringum þar sem með eins skýrum orðum og hægt er að gera lýsti héraðsdómarinn því yfir að í fyrirvörunum væri ekkert hald. Staðan er mjög sérstök þegar enginn stuðningsmanna innleiðingar þriðja orkupakkans í íslenskan rétt telur ástæðu til þess svo mikið sem að íhuga málið í nokkra daga, þótt ekki væri meira, hvað þá að fresta málinu fram á haust. Ég ítreka það sem haft er eftir Arnari Þór Jónssyni héraðsdómara, með leyfi forseta:

„Fyrirvarar Alþingis munu engu skipta þegar búið verður að fjármagna þennan sæstreng …“