149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[10:11]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þegar mál er borið fram með þeim hætti sem hér er gert fer ýmislegt í gegnum hugann. Ég vil trúa því og geri það að þegar menn hafa farið í þá vegferð að samþykkja þessa leið sem forsvaranlega, þ.e. þessa fyrirvaraleið, af góðum hug og ég reikna eins með því að hæstv. utanríkisráðherra og allir hans menn hafi talið þessa leið nægjanlega og færa. En síðan þegar staðan er orðin þannig að við blasir að svo er ekki þurfa menn með einhverjum hætti að leita leiðar til að taka málið aftur upp á borð, leiða það í jörð með einhverjum þeim hætti að þingmönnum líði bærilega með það. Ég tel alveg fullvíst að það séu ekki bara þingmenn Miðflokksins sem telja mikla meinbugi á því hvernig málið er lagt fram og hvernig varnir eru reistar í því, þ.e. í tengslum við þessa meintu fyrirvara. Það er stundum þannig í lífinu að ef hlutir virðast of góðir til að vera sannir eru þeir það og ég held að við séum að finna okkur í þeirri stöðu núna og við þurfum einhvern veginn í sameiningu að finna leið út úr þeirri stöðu.