149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[10:13]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um fundarstjórn):

Sá sem hér stendur hefur ekki langa reynslu af þingstörfum, en hann minnist þess ekki að þingfundur hafði staðið jafn lengi og nú. Án þess að kvarta sérstaklega yfir því langar mig að spyrja hæstv. forseta hvað hann hyggist halda þessum fundi áfram lengi. Mig fýsir einnig að vita hvort hann hyggist halda fund á morgun, uppstigningardag.

Mig langaði til að fá að vita það áður en lengra er haldið.