ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Svarið er það að fundarhald í dag verður í samræmi við það sem rætt var á fundum með formönnum þingflokka á mánudag. Það verður ekki mikið fundað í dag. Þá var ræddur sá möguleiki að hafa stuttan fund ef hann mætti nýtast til atkvæðaafgreiðslna og 3. umr. mála, en jafnframt tekið fram að gefið yrði eðlilegt hlé áður en eldhúsdagur hæfist, eins og venjan er. Svarið er að ekki verður haldið áfram langt fram eftir degi en það verður fundað eitthvað enn um sinn.
Á morgun verður ekki fundað en klukkan 9.30 á föstudagsmorgun hefst aftur fundur.