ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Já, það er sjálfsagt að greiða úr þessu. Það er ekkert til að greiða atkvæði um, það eru engin önnur mál tilbúin til afgreiðslu vegna þess að ekkert annað mál hefur komist að á dagskrá Alþingis í hátt á aðra viku en sú seinni umr. um dagskrármálið sem enn stendur. Það hefur ekki gildi að halda annan fund. Þess vegna verður þessari umræðu haldið áfram þangað til fundi verði slitið og verður það gert þannig að gott hlé gefst til þess að undirbúa sig undir eldhúsdag í kvöld.
Staðan er sú að á mælendaskrá í þessari seinni umr. um tillöguna, sem staðið hefur nú í 130 klukkustundir eða hátt í það, eru þrír ræðumenn og eiga allir fimm mínútna ræðurétt þannig að það tæki okkur 15 mínútur að ljúka umræðunni. Ef áhugi væri á því að sameinast um að ljúka þessari umræðu tæki það 15 mínútur þó að þessir þrír þingmenn fullnýttu ræðurétt sinn. Meðan hefur staðan verið sú iðulega í gegnum nóttina að forseti hefði alveg eins getað ætlað að henni myndi ljúka á næstu 10, 15 eða 20 mínútum af því að það hefur verið sá ræðutími sem mælendaskráin hefur teiknað upp. En við vitum svo sem að þannig hafa hlutir síðan ekki gengið fyrir sig.
Það er enn vilji forseta og ásetningur að reyna að ná því fram að þessari umræðu geti lokið með eðlilegum hætti. Þess vegna er fundað og gerðar tilraunir til þess. Þess vegna er tilmælum beint til þingmanna og skorað á þá að leggja sitt af mörkum svo við komumst aftur í gang með eðlileg þingstörf. Forseti telur ekki fullreynt þannig að ég hafði hugsað mér að halda a.m.k. þessari umræðu eitthvað áfram.