149. löggjafarþing — 112. fundur, 29. maí 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Það hryggir forseta mjög að hv. þingmaður hyggist ekki mæta til eldhúsdagsumræðna í kvöld. En forseti viðurkennir rétt hv. þingmanns til að ráða því sjálfur sem og sínum næturstað. Hv. þingmaður er sjálfráður að því, rétt eins og þingmenn eru sjálfráðir að því að halda áfram þessari umræðu. Enginn neyðir þá til þess.