ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Það er sérstakt að standa hér undir þessari umræðu en nú ætla ég að flytja ræðu. Það vantar orkustefnu fyrir Ísland, það er öllum ljóst og hafa verið skrifaðar um það greinar og fluttar fréttir. Það er dálítið merkilegt að fólk hafi ekki séð ástæðu til að koma inn í umræðuna hjá okkur Miðflokksmönnum til að ræða einmitt það atriði.
Ég ætla að byrja á því aðeins að velta fyrir mér þessum fyrirvörum sem finnast ekki og velta fyrir mér hvort þeir snerti ekki það að selja orku til útlanda með sæstreng. Það má vera rétt að fyrirvararnir snerti ekki beint á orkupakka þrjú, en um leið og við erum orðin sameinuð á þessum evrópska orkumarkaði munu fyrirvararnir taka gildi, séu þeir fundnir og þar með tengjast lagningu sæstrengs. Sæstrengur er kostnaðarsamt og áhættusamt verkefni en það hefur ekki stoppað fjárfesta í að leggja fé í púkkið. Við erum að tala um gríðarmiklar fjárhæðir og við höfum annað slagið hér í nótt minnst á grein sem birtist í Sunday Times þar sem fjárfestir lýsir sig reiðubúinn til að leggja hingað sæstreng, og er tilbúinn að fjármagna það. Það eina sem standi út af í þeim efnum sé að það vanti stimpil frá bresku ríkisstjórninni til að svo verði.
Gefum okkur að fyrirvararnir verði settir. Þá vitum við heldur ekkert um það hversu lengi þeir munu halda. Því hefur verið haldið fram í umræðunni að það sé Alþingis að ákveða hvort hingað eigi að leggja sæstreng, þá er ég jafnvel að tala um framtíðarþing. Fólk hefur talað um að það vonist þó til þess að ekki komi til þess. Ég held að við séum löngu komin fram yfir þann tímapunkt að geta fjallað um málið með von í brjósti, við verðum að setja fram alvöru lagalega fyrirvara þannig að allir séu á sömu blaðsíðu og þá sérstaklega gagnvart þeim aðilum sem eru nú þegar í startholunum, eins og þessi breski fjárfestir, sem virðist líta á það sem lögmál að hingað verði hægt að leggja sæstreng.
Við vitum að verði sæstrengur lagður hingað munum við bera töluverðan kostnað af því orkutapi sem af því hlýst og það mun auðvitað hækka raforkuverð. Það má ekki gleyma því að það mun verða íslenskri náttúru töluvert þungbært ef við þurfum að auka virkjunarframkvæmdir frekar. Svo er hitt atriðið að það er ótrúlegt að við séum, á vakt Vinstri grænna, yfirleitt að ræða um að auka einka- og markaðsvæðingu á orkuauðlindinni. Ég trúi ekki öðru en að stjórnarliðar almennt geri sér grein fyrir afleiðingum sem slík fyrirætlan getur haft á náttúru Íslands og auðlindir og að við munum missa sjálfsákvörðunarrétt okkar á auðlindinni. Í því sambandi vil ég minna enn og aftur á drög að frumvarpi um auðlindaákvæði sem liggur nú í samráðsgátt stjórnvalda.
Það er hugsanlegt að orkan sem framleidd verður hér verði seld til útlanda og keypt af mengandi stóriðju þar og jafnvel líka hér. Þar munu íslensk stjórnvöld ekkert hafa um það að segja. Störf verða í húfi. Það er alla vega spurning hvort við þurfum ekki raunverulega að velta því fyrir okkur hvort störf hér verði í húfi. Verkefni sem sett hafa verið á laggirnar eru líka í hættu. Það er erfiðara að koma til móts við landbúnað og garðyrkju sem vakið hafa athygli á því að þessar starfsgreinar standa nú þegar höllum fæti og varla á það bætandi að setja frekari kvaðir á þann iðnað. Það er líka ljóst að ESB-sinnar bíða eftir því að komast í ríkisstjórn þannig að hægt verði að (Forseti hringir.) innlima okkur að fullu í Evrópusambandið.