149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[10:25]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ræðu. Það var svo sem tímabært að talað yrði um það á íslensku að hér stendur til að markaðsvæða íslenskar orkulindir, auðlindir. Það stendur til að hleypa útlendingum að borðinu með sjálfsákvörðunarrétt. Ég held að það sé rétt að sú skoðun komi einu sinni fram þannig að allir skilji það. Það liggja fyrir nokkur lögfræðiálit um að með þeirri ákvörðun að samþykkja þessa þingsályktunartillögu sé um að ræða óheyrt, þ.e. til þessa, valdframsal sem tæplega standist stjórnarskrá. Það sýnist allt benda til þess að þetta verði gert, þeim sem að því standa ef svo verður til ævarandi sneypu, en að sjálfsögðu trúir maður enn á skynsemi fólks þó að sú trú fari þverrandi með hverjum klukkutímanum sem líður.

Ég er þess vegna ánægður með það að hv. þingmaður skyldi koma fram með þessa ræðu og mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að einmitt sú ástæða, þ.e. að nú verður útlendingum sleppt lausum í orkubúskap Íslendinga, kunni að vera skýring á því að það verður að böðla þessu máli í gegnum þingið með þeim hætti sem hefur verið gert og svo illa búið sem við blasir.