ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir spurningarnar. Það eitt að Evrópusinnaðir flokkar hér á þingi voru sérstaklega ánægðir með innleiðingu þriðja orkupakkans hefði átt að vekja ríkisstjórnarflokkana til vits um að eitthvað rangt væri á ferðinni. Það er hreinlega með ólíkindum að þeir flokkar, sem allir eru yfirlýstir andstæðingar þess að ganga í Evrópusambandið, skuli nú ætla að hleypa hverju málinu á fætur öðru í gegnum þingið.
Ég minntist fyrr í morgun á persónuverndarmálið sem við höfðum til umfjöllunar á síðasta þingi. Það tók okkur heila 13 daga að setja það í gegnum þingið. Það var ekki lítið mál, það var risavaxið mál, en það fór í gegn nærri því þegjandi og hljóðalaust. Það má ætla að svo sé um flestar þær gerðir sem við fáum, sem við innleiðum í íslenskan rétt. Ég er ekki í nokkrum vafa um að allir þeir þættir snúa að því að koma okkur með einhverjum hætti inn í Evrópusambandið. Mér finnst alveg stórfurðulegt að ríkisstjórnarflokkarnir skuli ekki hafa vaknað til lífsins með bara það atriði sem virðist blasa við, alveg sama hvaða málaflokk við tölum um. Síðast vorum við að tala um ófrosið kjöt, sem er einn þáttur, og svo eru fleiri mál.