ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er sem þessum ágætu aðilum leiki landmunir á að Ísland gangi í Evrópusambandið, sama Evrópusambandið og fæst núna við mikinn og augljósan innri vanda, sem hefur lýst því að það taki ekki við nýjum aðildarumsóknum, sem leggur alla þá steina sem það mögulega getur í götu Breta þegar þeir hafa ákveðið í þjóðaratkvæðagreiðslu að yfirgefa samkvæmið, sama Evrópusambandið og hefur nánast svipt grísku þjóðina frelsi sínu og fullveldi og gert að einhvers konar skuldaþrælum fyrir evrópska banka. Þangað stefnir hugurinn og nú skal blásið í herlúðra, eins og grein Þorsteins Pálssonar er náttúrlega tilkynning um. Það sem er uppi í málinu er að vegurinn er ruddur í þá átt af ríkisstjórn undir forystu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og með þátttöku Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Með öðrum orðum er Þorsteinn Pálsson að skýra það fyrir lesendum sínum að það séu verk ríkisstjórnar undir forystu Vinstri grænna með aðild þessara tveggja flokka, sem eru að ryðja þá braut þannig að ekki verði aftur snúið, eins og þeir aðilar vona væntanlega. Ég leita eftir viðhorfum hv. þingmanns í þeim efnum.