ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti vill nú upplýsa að þingfundur hefur staðið á Alþingi í réttan sólarhring og reyndar nokkrum mínútum betur. Að frátöldum matarhléum og hléum vegna annarra funda í gærdag og í gærkvöldi hefur virkur fundartími verið um 22 klukkustundir, sem sagt hefur enn ein tilraunin verið gerð til þess með löngum fundi að tæma síðari umr. um 2. dagskrármálið. Sú umræða hefur nú staðið í yfir 132 klukkustundir. Þar af hafa þingmenn Miðflokksins talað í rúmlega 110 klukkustundir. Andsvör í þessari síðari umr. um dagskrármálið eru orðin 2.675 og hafa tekið 85 klukkustundir í flutningi og það sem verra er þó að hér hefur ekki verið um andsvör að ræða nema að örlitlu leyti í byrjun umræðunnar. Hér hefur verið um samsvör skoðanabræðra í málinu að ræða og ljóst að framkvæmdin að þessu leyti er komin í miklar ógöngur og á engan hátt í anda þess sem þingsköp gerðu ráð fyrir þegar andsvör voru felld inn í ákvæði þingskapalaga.
Það linnulausa málþóf, sem forseti getur ekki lengur kallað annað en sínu rétta nafni, sem hér hefur verið hefur skapað ófremdarástand í þinginu. Tugir annarra þingmála sem mörg eru mikilvæg og varða þjóðarhag eða mikilvæga hagsmuni afmarkaðra hópa eða atvinnugreina hlaðast upp fullrannsökuð og bíða tilbúin til umræðu og afgreiðslu. Tilmæli og áskoranir forseta, varaforseta og annarra þingmanna til þingmanna Miðflokksins sem og samtöl við forystumenn og þingmenn Miðflokksins um að þeir láti nú af sínum linnulausu ræðuhöldum hafa engan árangur borið. Það eru forseta mikil vonbrigði og fer nú sennilega senn að verða fullreynt með að höfða til sanngirni, höfða til ábyrgðarkenndar eða biðja um liðsinni og aðstoð og að virðing sé borin fyrir grundvallarleikreglum lýðræðis og þingræðis í þessu tilviki.