149. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2019.

almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).

[21:56]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ágætu íbúar Íslands. Það eru hræringar í stjórnmálum víða um heim og hið sama gildir um Ísland. Eins og ávallt hafa stefnur og straumar í alþjóðamálum mikil áhrif. Þannig hefur það alltaf verið og gildir einu hvort rætt er um menningu, viðskipti eða stjórnmál.

Ísland er því ekki eyland í þessum skilningi. Okkar ábyrgð felst í því að hafa vit til þess að takast á við þessa strauma og stýra í krafti fullveldis okkar þjóðinni til heilla. Um leið eigum við að leggja okkar af mörkum til framfara í heiminum og taka fullan þátt í því að takast á við verkefnin sem hvert og eitt ríki getur hvorki ráðið við einsamalt né kosið að varpa ábyrgðinni á aðra.

Sumir halda því fram að vegna þess að Ísland sé frjálst og fullvalda ríki hafi það ekki eingöngu óskorað vald og getu til að ráða örlögum sínum og stöðu í heiminum heldur sé beinlínis rangt og skaðlegt að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi sem felur í sér sátt um alþjóðlegar reglur, Ísland eigi og megi ekki taka sér stöðu í samfélagi þjóða með sameiginleg markmið og stofnanir til að fylgja þeim eftir. Það heitir víst „að beygja sig undir erlent vald“ og „afsal fullveldis“. Þessari skoðun erum við í Viðreisn algjörlega ósammála. Okkar sýn er allt önnur. Við teljum happadrýgst fyrir Íslendinga að treysta enn frekar tengsl sín við önnur ríki Evrópu með aðild að Evrópusambandinu og nýta þannig fullveldið til hins ýtrasta til að bæta hag þjóðarinnar. Þannig tökumst við best á við þau stóru, sameiginlegu verkefni sem blasa við og verður að leysa með enn öflugri samvinnu.

Kjósendur í aðildarríkjum ESB kusu sér nýtt Evrópuþing um síðustu helgi og þær kosningar voru fyrir margra hluta sakir afar mikilvægar. Þátttaka í kosningunum var mikil í sögulegu samhengi. Hið hefðbundna flokkakerfi á Evrópuþinginu riðlaðist nokkuð og flóra flokkabandalaga varð fjölbreyttari. Er það svipuð þróun og orðið hefur í flestum þjóðþingum álfunnar og við þekkjum vel hér á landi.

Vissulega náðu popúlískir flokkar nokkrum árangri en eftir sem áður er það alveg kristaltært að þeir sem styðja vöxt og viðgang Evrópusambandsins eru í yfirgnæfandi meiri hluta. Uppgangur popúlisma víðs vegar í heiminum er verulegt áhyggjuefni og þess vegna er gleðilegt og mikilvægt að frjálslyndir flokkar unnu mest á í þessum kosningum. Frjálslyndi er nauðsynlegt mótvægi gegn ríkjum þar sem afturhald, lýðskrum og popúlismi grefur um sig.

Jafnframt er áhugavert hve góðum árangri Græningjar náðu og sýnir það svo ekki verður um villst að umhverfismál eru ofarlega í huga margra kjósenda. Það er mikilvægt og þess vegna hefur Evrópusambandið sett sér metnaðarfyllri markmið í loftslagsmálum en nokkurt annað þjóðabandalag. Samt þarf að gera miklu betur.

Í upphafi máls míns minntist ég á að stefnur og straumar í alþjóðamálum hafa haft mikil áhrif á Íslandi. Popúlismi, öfgar, þjóðernishyggja, afneitun vísinda, stjórnmál sem byggja á ótta, tilbúinni hættu og óvinum hafa aldrei í veraldarsögunni leitt til góðs. Það mun ekki heldur gerast nú, það mun ekki gerast á Íslandi, það mun ekki gerast í Evrópu og hvergi annars staðar í heiminum. Við verðum að velja og hafna í þessum efnum. Viðreisn mun spyrna kröftuglega gegn einangrunarhyggju og hvers kyns afbökun á sannleikanum. Of oft hefur misskilið umburðarlyndi og andvaraleysi haft hörmulegar afleiðingar. Við í Viðreisn erum sannfærð um að frjálslyndi sem setur almannahagsmuni framar sérhagsmunum sé okkur öllum fyrir bestu. — Megi sólin verma ykkur öll í sumar.