149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

störf þingsins.

[09:37]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Hverri ríkisstjórn ber að leggja fram fjármálastefnu svo fljótt sem auðið er í upphafi hvers kjörtímabils og skal sú stefna gilda til fimm ára. Núverandi ríkisstjórn hefur vissulega farið nokkuð frjálslega með lög um opinber fjármál til þessa, en nú virðist komin upp sú nýbreytni að hér verði lögð fram fjármálastefna árlega. Þegar fjármálastefna hin fyrsta þessarar ríkisstjórnar var lögð fram vöruðu fjölmargir sérfræðingar við því að hún byggði á allt of bjartsýnum efnahagsforsendum og myndi ekki standast. Ríkisstjórnin kaus að skella skollaeyrum við þeim aðvörunarorðum og hefur unnið eftir þeirri fjármálastefnu undanfarna 14 mánuði eða svo, en sá sig nú knúna til að leggja fram nýja fjármálastefnu sem gerir ráð fyrir hallarekstri á ríkissjóði næstu fjögur árin.

Það er áhugavert að skoða þær forsendur sem liggja að baki nýrri, reyndar ósamþykktri, fjármálastefnu þessarar ríkisstjórnar því hún gefur ekkert svigrúm til þess að forsendur í hagkerfinu kunni að vera heldur veikari en gert er ráð fyrir í núverandi hagspá Hagstofunnar. Það er athyglisvert, sérstaklega með tilliti til þess að gert er ráð fyrir umtalsverðum skelli í hagkerfinu á þessu ári en svo að við munum halda áfram eins og ekkert hafi í skorist á því næsta. Rétt er að hafa það í huga að forsvarsmenn ferðaþjónustunnar hafa bent á að það sé ekkert í kortum þeirra sem bendi til að sú verði raunin. Hér er augljóst að ríkisstjórn þarf að gera ráð fyrir að þetta kunni að reynast erfiðari brekka en núverandi hagspá gerir ráð fyrir. En það er kosið að skella skollaeyrum við því að nýju og halda áfram að þenja út ríkisútgjöld með fordæmalausum hætti. Það verður því spennandi að takast á við umræðu um enn nýja fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar að ári.