149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

störf þingsins.

[09:40]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Sl. miðvikudag var formlega opnuð ný sjóvarmadælustöð HS Veitna í Vestmannaeyjum. Undirbúningur að byggingu þessarar stöðvar hófst í rauninni árið 2006 en bygging núverandi húsnæðis í apríl 2017 og vinnsla hófst í október 2018. Stöðin er 10,4 MW og er sú önnur stærsta í heiminum. Verkefnið er fyrst og fremst sett á laggirnar til að spara kostnað, ekki til að auka veltu fyrirtækisins.

Það er óhætt að segja að þessi beina orkuöflun til húshitunar í Vestmannaeyjum sé rós í hnappagat nýsköpunar á Íslandi. Nýsköpunarmiðstöð Íslands sá um hönnun stöðvarinnar og er hún og öll vinna og aðkoma að þessu verkefni öllum til fyrirmyndar. Dælt er upp 8°C heitum sjó. Úr honum er teknar 4°C sem hita ammóníak sem breytist þar með í gufu, en suðumark ammoníaks er mínus 33°C, þ.e. 4°C eru hitaðar upp í gufu og hún síðan notuð til að hita upp vatn í lokuðu kerfi fyrir húshitun í Vestmannaeyjum.

Þetta er gríðarlega flott verkefni. Afganginum af sjónum sem dælt er upp er dælt út fyrir Eiði en á leiðinni nýta uppsjávarfiskiskipin sér kaldan sjóinn til að dæla um borð og nota í kælikerfi. Þar með spara fiskiskipin gríðarlega orku við að dæla inn 12°C heitum sjó og kæla hann niður með olíu í 3°C. Verkefnið er afar vel hugsað og vel sett fram, íslenskri nýsköpun til hróss.