149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

störf þingsins.

[09:42]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Á vormánuðum hefur legið fyrir Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um fiskeldi. Atvinnuveganefnd hefur haft málið til umfjöllunar og hefur lagt mikla vinnu í að fara yfir breytingar, enda mikið í húfi. Ein veigamesta breytingin með frumvarpinu er lögfesting á því að Hafrannsóknastofnun meti mögulegan fjölda eldislaxa í ám og gefi út ráðgjöf, byggða á mati sem kallað er áhættumat. Þá skal áhættumatið samkvæmt lögum taka tillit til mótvægisaðgerða sem annars vegar skulu lágmarka hættu á stroki úr kvíum og hins vegar aðgerða sem grípa skuli til ef mögulegt strok verður. Er breyting og lögfesting á þeim mótvægisaðgerðum algjört lykilatriði þar sem þær draga enn frekar úr líkum á skaðlegum áhrifum eldisins og stuðla þannig að umhverfisvænni rekstri og betri sátt við aðra hagsmuni.

Eðlilega eru skiptar skoðanir um fiskeldið, aðferðir, ávinning og afleiðingar. Fiskeldi hefur verið stundað í einhverjum mæli hér við land síðustu áratugi og hafa þær tilraunir í byrjun ekki tekist nægilega vel. Margt kom þar til, tækni og búnaður og þekking voru ekki á því stigi sem til er í dag.

Virðulegi forseti. Íslendingar hafa umgengist auðlindir hafsins af virðingu um aldir. Byggjum á þeirri reynslu við uppbyggingu fiskeldis, styrkjum stoðir undir hefðbundinn sjávarútveg og fleiri atvinnutækifæri skapast þá sem skapa verðmæti úr hafinu.

Þegar sjómenn fyrr á öldum ýttu úr vör fóru þeir með sjóferðabæn, báðu góða vætti að fylgja sér að heiman og heim heilu og höldnu og þökkuðu fyrir þær bjargir sem sjórinn veitti. Þeir vissu að þeir væru einungis hluti af þeirri náttúru sem þeir sóttu til en voru ekki drottnandi. Lítum til þeirrar menningar og þeirrar auðmýktar sem forfeður og -mæður höfðu að leiðarljósi.

Gleðilegan sjómannadag, kæru sjómenn og Íslendingar allir.