störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég get ekki látið hjá líða að ræða störf þingsins undir liðnum störf þingsins og hvaða stöðu við erum í eftir að hafa setið hér daga og nætur og rætt þriðja orkupakkann. Í 133 klukkustundir hefur þetta mál verið rætt hér.
Að mínu viti hefur fullt af rangfærslum verið haldið fram í þeirri umræðu. Það er t.d. alveg á hreinu að sú leið sem lögð er til hér við afgreiðslu þriðja orkupakkans stenst stjórnarskrá. Það var margfarið yfir það í hv. utanríkismálanefnd og öllum ber saman um að svo sé.
Sæstrengur kom líka mjög oft til umræðu hjá okkur í hv. utanríkismálanefnd. Og eins og einn lögfræðingur sem heimsótti okkur, Skúli Magnússon, sagði þá eru það lögfræðilegir loftfimleikar að halda því fram að þriðji orkupakkinn leiði til þess að hægt verði að skylda íslenska ríkið til að leggja sæstreng. Ef menn telja sig geta knúið íslenska ríkið til að tengjast rafmagnsstreng þá hefur sú hætta verið fyrir hendi í 25 ár og þriðji orkupakkinn breytir engu þar um.
En það er einmitt hluti af innleiðingunni okkar núna að taka af öll tvímæli um að sæstrengur verður aldrei lagður nema með samþykki Alþingis.
Þannig fjallar orkupakkinn í raun ekki um auðlindastjórnun í viðkomandi ríki. Ákvarðanir um notkun auðlinda okkar verða eftir sem áður á valdsviði þeirra sem þennan sal skipa. Og orkupakki þrjú gerir enga kröfu um einkavæðingu orkufyrirtækjanna. Ákvarðanir um slíkt munu alltaf vera á herðum íslenskra stjórnvalda og það stendur ekki til að einkavæða Landsvirkjun.
Virðulegur forseti. Ég verð að (Forseti hringir.) beina þeim tilmælum til hv. þingmanna Miðflokksins að þessari umræðu linni. (Forseti hringir.) 133 klukkustundir. Til samanburðar notaði norska Stórþingið fjóra og hálfa klukkustund í að ræða nákvæmlega sama mál.