störf þingsins.
Herra forseti. Í gær, uppstigningardag, birtist grein í Fréttablaðinu eftir hv. þm. Guðmund Andra Thorsson. Hv. þingmaður er frábær penni og yfirleitt væri frekar ástæða til að hrósa þingmanninum en lasta hann. En ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þessa grein. Þingmaðurinn fer með fullyrðingar sem ekki standast skoðun og spurning er hvort hann standi við þær hér í þessari pontu.
Er ég þá sérstaklega að vísa til fullyrðinga um að markmið, eða eitt af markmiðum, með frumvarpi um Seðlabanka sé að skipa flokksgæðinga í embætti seðlabankastjóra. Sannleikurinn er sá að hæfisskilyrði og skilyrði um hæfisnefndir eru óbreytt frá þeim breytingum sem gerðar voru í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur árið 2009.
En hví er ég að gera þetta að umtalsefni? Það er vegna þess að það veldur mér vonbrigðum þegar svona lúabrögðum er beitt af góðum dreng.
Í frumvarpi um Seðlabanka kemur fram, með leyfi forseta:
„Seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri peningastefnu skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum.“
Einnig kemur fram að seðlabankastjóri skuli hafa gott orðspor, skuli aldrei hafa verið dæmdur fyrir refsiverðan verknað gagnvart almennum hegningarlögum eða lögum tengdum fjármálum. Með öðrum orðum: Þar er nákvæmlega ekkert sem styður fullyrðingu hv. þingmanns um þetta efni.
Herra forseti. Hugsanlega hefur hv. þingmaður gert mistök og þá horfir málið öðruvísi við. Þá er kannski eingöngu um svokallaða „bullyrðingu“ að ræða — en „bullyrðingum“ erum við orðin býsna vön hér í þessum þingsal í umræðu um önnur mál.