149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

störf þingsins.

[09:58]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Þessi liður fjallar um störf þingsins sem fara enn fram á bak við tjöldin, í nefndum, meðan við almenningi blasir þessi ræðustóll, svona dálítið eins og ein þeirra gif-mynda þar sem sama hreyfingin er sýnd aftur og aftur og aftur. Sama fólkið kemur hingað upp í ræðustólinn og skiptist á að halda sömu ræðurnar með sömu andsvörunum svo manni verður hugsað til vísu Stefáns G. um einhvern mann sem hafði mikla unun að því að heyra sjálfan sig tala, með leyfi forseta:

List er það líka og vinna

lítið að tæta upp í minna,

alltaf í þynnra að þynna

þynnkuna allra hinna.

Manni detta jafnvel í hug línur Bubba Morthens: „Hann talaði og talaði og malaði og malaði.“

Það koma jafnvel í hugann línur Einars Ben úr ljóðinu Einræður Starkaðar: „Er mælt hér eitt orð, sem ei fyrr var kunnað?“

Svo má líka rifja upp ljóðið ódauðlega eftir Sigfús Daðason, Orð, þar sem koma fyrir þessar línur, með leyfi forseta:

Hvað sem öðru líður vil ég biðja menn

að fara varlega með orð

þau geta sprungið

og þó er hitt öllu hættulegra

að það getur vöknað í púðrinu.

Herra forseti. Við tölum um að hafa orðið þegar einhver talar, gefa orðið, því að orðið er frjálst, en hitt, að taka orðið, hrifsa orðið til sín og fara með það sem sína eign — það er fullmikið. Það er kannski ofmælt að tala hér í þessu sambandi um ofbeldismenn, kannski frekar orðbeldismenn.

Virðulegi forseti. Mig langar að biðja orðinu griða. Orðið á ekki að vera herfang heldur víddin sem við mætumst í.