149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

störf þingsins.

[10:05]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Eins mikið og mig langar til að tala um fjármálastefnuna hérna — það verður vonandi nægur tími til þess, eða mjög líklega — þá langar mig að tala um þau þingmál Pírata sem hafa ekki komist í umræðu.

Nú hafa 15 þingmál Pírata komist í gegnum 1. umr. en eru föst í nefnd. 29 þingmálum Pírata hefur ekki einu sinni verið hægt að mæla fyrir. Sá listi er langur og góður. Þar er talað um bætta stjórnsýslu í umgengnismálum, rafræna og tölvutæka birtingu á Stjórnartíðindum og Lögbirtingablaði. Það er kosningarréttur, að hætta að þurfa að kæra sig inn á kjörskrá. Það er undirritun og fullgilding þriðju valfrjálsu bókunarinnar við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Það er brottfall 208 tómra laga. Það er frumvarp um fæðingar- og foreldraorlof, tvö frumvörp um meðferð einkamála, málskot í meiðyrðamálum og rökstuðningur við málskotsákvarðanir. Það er frumvarp um rafræn fasteignaviðskipti og ástandsskýrslur fasteigna, stofnun þingkjörinna fulltrúa innan Sameinuðu þjóðanna, stofnun embættis tæknistjóra ríkisins, persónukjör þvert á flokka, íbúakosningu um einstök mál, helgidagafrið, ókeypis lóðir tengt Kristnisjóði, opinber fjármál, þ.e. fjöldi fulltrúa í fjármálaráði og tímasetning á framlagningu fjármálaáætlunar. Það er frumvarp um höfundalög, að tölvur geti lært íslensku án þess að borga þurfi sérstaklega fyrir það. Það er afnám skerðingar lífeyris vegna miskabóta. Það er um áfengislög, heimabrugg, þjóðsöng Íslendinga, að hægt sé að fá smá Jimmy Hendrix og Queen-útgáfu af þjóðsöngnum. Utanríkisþjónusta Íslands, skipun ráðuneytisstjóra og sendiherra, barnalög, fæðingarstaður barns, aftur um fæðingar- og foreldraorlof, andvanafæðingar, stjórn fiskveiða, frjálsar strandveiðar, Lögréttu, ársreikninga hlutafélaga, aukinn aðgang að ársreikningaskrá og hlutafélagaskrá. Það er grænn sáttmáli og sjálfstæði kirkjunnar, hvorki meira né minna.

Þessi mál hafa ekki einu sinni komist í 1. umr. Ég kvarta sérstaklega yfir því af því að stór hluti þess að koma hérna er til að (Forseti hringir.) hefja umræðuna og taka umræðuna.