lengd þingfundar.
Forseti átti áðan fund með formönnum þingflokka og á þeim fundi var upplýst að forystumenn flokka hyggjast eiga fund nú kl. 11 um stöðu mála og leita leiða til að ná samkomulagi. Því varð niðurstaða á fundi forseta með formönnum þingflokka að víkja aðeins frá röð mála á dagskrá á meðan slíkar umleitanir standa og hefja umræður um sjötta dagskrármálið og halda síðan niður eftir dagskránni eftir því sem fram vindur, en þó verða ekki rædd 25. og 31. og 32. dagskrármálið að svo stöddu.
Forseti bar upp í byrjun fundar tillögu um lengd þingfundar og var óskað eftir atkvæðagreiðslu um þá tillögu. Forseti vill í því sambandi nefna að að vísu er það svo að ákvæði um lengd þingfunda sem bundnar eru ákveðnum takmörkunum fjalla um þingfundi innan starfsáætlunar, samanber það sem segir í 10. gr. þingskapa: „Reglulegir þingfundir samkvæmt starfsáætlun skulu ekki standa lengur en til kl. 8 síðdegis“ o.s.frv.
Sú hefð hefur myndast hér undanfarin ár að eftir að starfsáætlun er úr sambandi þurfi ekki sérstaklega að bera upp tillögur um lengri þingfundi enda eru þeir oft nánast óumflýjanlegur hluti af því að ljúka þingstörfum. Engu að síður vill forseti gjarnan vita hver hugur salarins er og ber því upp tillögu sína núna um að þingfundur geti staðið lengur en þingsköp kveða á um, en vill hafa þennan fyrirvara á að í sjálfu sér er ekki endilega þörf á slíku eftir að starfsáætlun hefur verið tekin úr sambandi miðað við þá hefð og túlkun sem hér hefur myndast.
Hefst nú atkvæðagreiðslan um tillögu forseta.