149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

fullgilding samnings um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins.

773. mál
[11:00]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Silja Dögg Gunnarsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég flyt nefndarálit fyrir hönd utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu samnings um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Finn Þór Birgisson frá utanríkisráðuneyti og Arnór Snæbjörnsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að meginmarkmið Norður-Íshafssamningsins er að koma í veg fyrir stjórnlausar fiskveiðar á úthafinu í miðhluta Norður-Íshafsins, en hafsvæðið sem er um 2,8 milljónir ferkílómetra að stærð, telst úthaf í skilningi hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna.

Fram til þessa hefur þetta hafsvæði verið þakið ís mestan hluta ársins og hafa fiskveiðar þar því ekki verið mögulegar. Með breytingum á ísþekju, hlýnun sjávar, breyttum seltuskilyrðum og breyttri hringrás, flæði og aðstreymi sjávar verður ekki lengur útilokað að síðar meir kunni fiskveiðar í atvinnuskyni á þessu hafsvæði að verða mögulegar. Samningurinn byggist á varúðarnálgun og er ætlað að tryggja að verndunar- og stjórnunarráðstafanir vegna þessa hafsvæðis verði hluti af langtímaáætlun sem miði að því að tryggja heilbrigð sjávarvistkerfi og tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu fiskstofna. Samkvæmt samningnum skuldbinda aðilar sig annars vegar til þess að koma í veg fyrir veiðar í atvinnuskyni á samningssvæðinu á meðan vísindaleg óvissa ríkir um hvort stunda megi slíkar veiðar með sjálfbærum hætti. Hins vegar skapar samningurinn ramma um hvernig taka megi næsta skref þegar vísindalegar upplýsingar styðja að hefja megi slíkar veiðar, að teknu tilliti til viðeigandi sjónarmiða varðandi stjórn fiskveiða og áhrif slíkra veiða á vistkerfið, þar með talið varúðarnálgunar.

Þá kemur fram í greinargerð að við gerð Norður-Íshafssamningsins var skilgreining samningssvæðisins eitt af viðkvæmari úrlausnarefnum samningaviðræðnanna, m.a. vegna réttarstöðu hafsvæðanna í kringum Svalbarða.

Loks kemur fram í greinargerð að framkvæmd samningsins hér á landi kallar á að íslensk stjórnvöld meini íslenskum fiskiskipum að stunda veiðar á úthafinu á miðju Norður-Íshafi en engar slíkar veiðar eru stundaðar í dag.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.