fullgilding samnings um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Samningar sem þessir eru gríðarlega mikilvægir til að stjórna veiðum til að hafa allt innan skynsamlegra marka og sjá til þess að ekki sé ofveitt. Hér er um að ræða samning sem tekur yfir býsna stórt og mikið svæði. Samningurinn byggir á varúðarnálgun, eins og fram kom í ræðu hv. þingmanns, og mikilvægt að við förum varlega, förum ekki þá leið að ofveiða nokkra stofna sem geta nýst okkur eða öðrum því að við viljum ekki sitja uppi með hafið hálftómt af fiskstofnum sem hægt er að nýta.
Mig langar að biðja þingmanninn að rifja upp með okkur hvað það er sem felst í varúðarnálguninni því að ég tel hana býsna mikilvæga.