um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég kem hingað til að forvitnast um með hvaða hætti hæstv. forseti sér fyrir sér að röð mála gangi fram. Það var áætlað að fyrst yrði tekin hér til umræðu heilbrigðisstefna til ársins 2030 og við gerðum ráðstafanir, tveir þingmenn Miðflokksins sem hafa áhuga á að tjá sig um þetta mál. Annar þeirra þurfti sérstaklega að gera ráðstafanir til að koma sér hið snarasta í hús og færa til annan fund til þess þannig að mig langaði til að spyrja hæstv. forseta hvenær hann sjái fyrir sér að umræða um heilbrigðisstefnuna verði á dagskránni. Mér sýnast átta til níu þingmenn vera á mælendaskrá. Eins og ég segi gripum við til ráðstafana til að geta tekið þátt í þeirri umræðu og ég spyr hvort ástæða sé til að vinda ofan af þeim.