149. löggjafarþing — 114. fundur, 31. maí 2019.
um fundarstjórn.
Forseti vill upplýsa að af praktískum ástæðum varð að ráði að gera hlé á umræðu um heilbrigðisstefnu en við gerum ráð fyrir því að fljótlega hefjist umræða að nýju um það mál. Það voru innanhússástæður hér. Þingmenn voru fjarri, eins og hv. þingmaður nefndi, en það er gert ráð fyrir að umræðan hefjist um leið og menn hafa safnast til hússins.