149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

umferðarlög.

219. mál
[12:28]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrst af öllu þá ágætu vinnu sem hefur átt sér stað í umhverfis- og samgöngunefnd í þessu viðamikla máli. Það er í mörg horn að líta og hefur tekist ágætlega til, sýnist mér, að mestu leyti. Þingmaðurinn fór nokkuð vel yfir það hvernig umferðarlög spretta kannski úr þeirri þörf að við þurfum ramma til að tryggja öryggi fólks sem er á ferðinni, en á síðustu árum höfum við kannski áttað okkur betur á því að þetta eru líka lög sem skipta miklu máli varðandi umhverfismál. Eins og kemur fram í greinargerð með málinu er einn tilgangur laganna að tryggja að fólk komist á öruggan hátt á milli staða óháð samgöngumáta.

Mig langar að spyrja þingmanninn út í tvö atriði sérstaklega. Annars vegar að í frumvarpinu er opnað á hærri hámarksakstur en áður hefur verið, 110 km hámarkshraða, þar sem akstursstefnur eru aðskildar. Nú er það svo að losun bifreiða á koltvíoxíði vex með veldisvexti eftir hraða. Mig langar að spyrja hvort lagt hafi verið mat á áhrif þessarar breytingar á loftslagsmál.

Hitt atriðið sem mig langar að nefna er sú breyting sem er lögð til á 79. gr., um öryggis- og verndarbúnað óvarinna vegfarenda, af því að í nefndarálitinu kemur fram að ekki liggi fyrir afgerandi rannsóknir sem taki af allan vafa þeirra megin sem vilja ekki setja hjálmabannið inn. Mig langar að spyrja hvort tillaga nefndarinnar byggi á sterkari grunni, hvort einhverjar rannsóknir mæli með því að aldursmörkin verði færð úr 15 árum upp í 18 ár.