umferðarlög.
Virðulegi forseti. Varðandi bílaleigubíla, umferð ferðamanna, tjónabíla og annað slíkt vil ég að segja að við fengum minnisblöð fyrir nefndina og þetta er skýrt lögbrot. Það skortir kannski svolítið á að fylgja því eftir. Við vildum taka þetta sérstaklega af því að það er eiginlega eina stóra atriðið í nefndarálitinu sem við komum ekki með breytingartillögu við, annars eru breytingartillögur og annað í nefndarálitinu. Við sendum því mjög alvarleg skilaboð til Samgöngustofu og samgönguyfirvalda um að þau verði að sinna eftirliti með því alvarlega máli.
Það er margt annað sem hægt er að gera og við hefðum mögulega getað komið inn á í nefndarálitinu og gott að fá að koma inn á það hér. Það er spurning hvort við eigum að gera skýrari kröfu um það hvað bílaleigubílar sem ferðamenn leigja mega vera gamlir og hversu mikið eknir þeir eru. Til að setja eitthvert hámark á það þyrfti að endurskoða lög um bílaleigur o.fl. Ég held að það gæti aukið öryggi, af því nýrri bílar eru með aukinn öryggisbúnað sem er mjög mikilvægt fyrir þá góðu gesti sem við fáum og eru ekki vanir aðstæðum okkar. Ég tel það vera mikilvægasta fyrir okkur að sjá, hvaða kröfur eru gerðar til þeirra ökutækja sem ferðmenn leigja og hvaða kröfur eru gerðar til bílaleigna um aksturshæfni þeirra sem fá að leigja af þeim bíla. Þetta getum við gert í reglugerðum og gætum þurft að skoða í öðrum lögum en umferðarlögum. Ég fagna því mikið að fá að ræða það hér.