149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

heilbrigðisstefna til ársins 2030.

509. mál
[16:06]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða um tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Í velferðarnefnd skrifa ég undir þessa ágætisstefnu með fyrirvara. Segjast verður eins og er að það er auðvitað ákveðið markmið að stefna á góða heilbrigðisþjónustu fram til ársins 2030, en því miður virðist sú staða vera að heilbrigðisstefnan, eins og hún er í dag, er ekki til fyrirmyndar. Biðlistaátak stjórnvalda hefur gjörsamlega mistekist, þ.e. að útrýma biðlistum, og því miður er enn þá stór hópur barna á biðlistum og fjölgar þeim dag frá degi, t.d. á biðlista á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Ekkert hefur gengið að útrýma biðlistum vegna bæklunaraðgerða, eins og hnjá- og mjaðmaaðgerðum. Það er alveg óásættanlegt að sú staða skuli vera að hægt sé að senda með nær tvöföldum kostnaði einstaklinga erlendis í slíkar aðgerðir á sama tíma og ekki eru nýttir þeir fjármunir betur með því að semja við þá sem geta veitt þessa þjónustu hér heima, og með því er þá a.m.k. reynt að stytta biðlistana.

Það verður að segjast alveg eins og er að biðlistar eru í lagi í stuttan tíma, eins og við segjum; vikur, tveir, þrír mánuðir í mesta lagi, en að vera enn á biðlista eftir þrjá mánuði fer að valda skaða. Því lengur sem fólk er á biðlistum, því meiri skaði.

Ég þekki það af eigin raun að vera á biðlista í ár eða meira, það er bara hrein og bein hryllingssaga. Það er því miður ekki réttlætanlegt. Það getur aldrei verið réttlætanlegt að gefa fólki frekar lyf á lyf ofan, töflu eftir töflu, töflur við aukaverkunum, og gera það í vikur, mánuði og ár án þess að neinar bjöllur hringi: Bíddu, hvað er kerfið að gera þessu fólki? Jú, það er að valda því skaða og það mjög alvarlegum skaða. Flestallir vita að líkaminn myndar þol við lyfjum og verkjalyfjum þannig að það þarf alltaf meira og meira til að koma í veg fyrir að fólk kveljist á svona listum. Síðan er alltaf sú hætta að fólk þoli hreinlega ekki þessi lyf og verði að fíklum, hreinlega er verið að búa til og framleiða fíkla í boði ríkisins. Það er ein birtingarmyndin.

Svo er líka önnur birtingarmynd í þessu samhengi, sem er kannski það ljótasta af öllu, þ.e. hættan á því að fólk gleymist á biðlistum og þá erum við að framleiða öryrkja til lífstíðar. Það hefur verið sannað að þegar einstaklingur er búinn að vera í níu mánuði á biðlista eru um 90% líkur á því að hann fari ekki til vinnu, fyrir utan það tjón sem viðkomandi hefur orðið fyrir með því að þurfa að innbyrða allt að 20, 30 töflur á dag allan þann tíma.

Einnig er annað í þessu og það er í sambandi við heilbrigðisþjónustu úti á landsbyggðinni. Við höfum heyrt nýjar sögur um það í Borgarfirði eystri, þar sem engin þjónusta var, heilbrigðiskerfið algerlega í molum. Það var ekki einu sinni til nál og tvinni eða sótthreinsunarefni eða neitt til deyfingar. Það segir okkur að þar fer okkur gífurlega aftur og setur mann í samhengi við það sem ég varð var við á Nuuk í Grænlandi, sem ég hafði kynni af þar, þar sem engir vegir eru til að fara. Þá eru þeir með, hvað á að kalla það, heilbrigðiskerru, þar sem allt er í einni góðri kerru sem þarf til að þjónusta; mynda, deyfa, sauma og gera smáaðgerðir. Þetta er allt til staðar í einum kassa sem hægt er að grípa til á hverjum stað. Og þetta er auðvitað það sem við eigum að stefna að að koma á, þar sem ástandið er það slæmt að ekki er einu sinni til nál og tvinni eða deyfilyf til að gera að smásárum.

Það er líka annað við landsbyggðina, sem er auðvitað áfellisdómur yfir heilbrigðiskerfinu í heild sinni, að það sé fjárhagslegt gjaldþrot ef einstaklingar úti á landsbyggðinni greinast með krabbamein. Það á að vera búið að taka á svona hlutum löngu áður en við förum að hugsa til ársins 2030, vegna þess að þetta gerist í dag og þetta þarf að leysa í dag. Að það sé gígantískur kostnaður sem leggist á fólk við að þurfa að fara utan af landi til Reykjavíkur í krabbameinsmeðferð, og fyrir suma sé það ávísun upp á fjárhagslegt gjaldþrot. Og liggur við að ég hugsi með mér hvort einhverjir hafi hreinlega neitað sér um slíka þjónustu af því að hún er allt of dýr.

Þess vegna er það svolítið skrýtið þegar maður sér í heilbrigðisstefnunni: Fólkið í forgrunni. Fólk úti á landi á auðvitað að vera í forgrunni og það á að vera metnaður okkar að krabbameinslækningar séu gjaldfrjálsar eins og er í flestum löndum í kringum okkur og að allir geti fengið þá þjónustu án þess að það hafi áhrif á fjárhagslega stöðu þeirra.

Það er annað sem tengist heilsu sem þarf að efla og það er endurhæfingarþjónusta. Hún skilar rosalega góðum hlutum. Þar þarf að taka virkilega til. Síðan er öldrunarþjónustan á spítölunum í einhverri undarlegri mynd þegar eldra fólk, eins og ég hef áður sagt, er orðið fráflæðisvandi spítalans. Þá segjum við: Þá er eitthvað mikið að kerfinu.

Þá kemur að dvalar- og hjúkrunarheimilum. Þar þarf aldeilis að taka til hendi. Þar hefur verið gerð krafa um að semja um raunkostnað þeirrar þjónustu sem virðist ekki ganga upp og fólk, kerfið, virðist alltaf einhvern veginn vera að humma það fram af sér. Þar ætti nú að fara í stórátak.

Geðheilbrigðismálin. Þau eru því miður ekki í góðum farvegi. Eins og við höfum orðið vör við hefur verið tekist vel á í sambandi við t.d. Hugarafl og fleiri góð samtök sem eru að reyna að standa sig í þeim málum. En sem betur fer er það þó alla vega komið í skjól í bili. En betur má ef duga skal.

Það er annað í þessu sem er rétt þjónusta á réttum stað. Það er eitt af því sem við þurfum að skoða vel og vendilega. Í þessu samhengi verð ég samt að benda á mjög góða niðurstöðu sem skilar sér mjög vel og ætti að hampa betur og ætti almenningur að kynna sér það mjög vel. Ætti það að vera nr. eitt í heilbrigðisstefnunni að byrja á að kynna það vel og vendilega, þ.e. vefurinn heilsuvera.is. Það er eitt frábærasta framtak sem hefur komið, sem skilar því að þar getur einstaklingur verið í beinu sambandi við lækninn sinn á rauntíma, í venjulegri dagþjónustu og líka að endurnýja lyf og annað. Þetta er hlutur sem hefur nú þegar sannað sig. Þarna eru komin nú þegar inn, held ég, um 65.000 einstaklingar. Það hefur þegar sparað þvílíkar komur og símtöl til heilsugæslunnar, sem sýnir að þetta virkar mjög vel. Þetta þarf að kynna betur á allan hátt.

Síðan er ýmislegt ámælisvert, eins og með þá sem deyja út af eitrunum eða lyfjum, einstaklingar sem virðast hafa gleymst í kerfinu, virðast alltaf einhvern veginn falla á milli skips og bryggju. Það er auðvitað óásættanlegt að við missum 30–40 manns á ári vegna lyfjaeitrunar. Þetta er hlutur sem við verðum að koma í lag og eigum að koma í lag. Það er okkur ekki sæmandi að gera ekkert í þessum málum eins og við höfum haft þau og líka þarf að taka á biðlistum hjá SÁÁ. Það sýnir okkur að þó að þessi stefna sé góð og gild, og ég get stutt hana með fyrirvara eins og ég hef sagt og talið hérna upp, þá er hún ekki nógu góð.

Það sem pirrar mig mest er: Af hverju byrjar ríkisstjórnin ekki á að koma, a.m.k. að lágmarki, hlutunum í lag eins og biðlistunum? Af hverju eru 350 börn á biðlista eftir greiningu? Af hverju eru 600 manns á biðlista eftir hné- og mjaðmaaðgerðum? Hvað er það í okkur sem veldur því að við látum þetta viðgangast ár eftir ár, og meira að segja fjölgar á biðlistum, eins og er hjá börnunum? Þetta getur ekki verið ásættanlegt. Það þarf ekki að segja mér að þetta sé einhver gígantískur kostnaður. Þetta er bara kostnaður sem við verðum að forgangsraða í og eigum að sjá til þess að sé forgangsraðað.

Við þurfum að takast á við þetta strax. Vonandi verður það gert við fyrsta tækifæri.