149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

heilbrigðisstefna til ársins 2030.

509. mál
[17:16]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Halldóru Mogensen og formanni velferðarnefndar fyrir ágætisyfirferð yfir þetta nefndarálit og heilbrigðisstefnuna. Mig langar að spyrja þingmanninn út í ýmis atriði. Mér finnst t.d. landsbyggðin bera svolítið skarðan hlut frá borði í heilbrigðisstefnunni, þá sérstaklega hvað varðar heilsugæslulækna. Eins af því að þingmanninum varð tíðrætt um forvarnir þá er ekki mikið að finna um forvarnir, endurhæfingu, öldrunarþjónustu, utanspítalaþjónustu, lýðheilsu og geðheilbrigðismál. Var þetta ekki skoðað í nefndarvinnunni og ef svo er af hverju var það þá ekki sett inn í nefndarálit meiri hlutans?

Svo sé ég líka umsögn frá Landssambandi eldri borgara þar sem þau benda á þá augljósu staðreynd að eldri borgurum er að fjölga mikið og þá þurfum við að bregðast við því með því að gera ráðstafanir til að auka þjónustu. Eins bara í sambandi við fjármögnun á þessari áætlun, hvort þingmaðurinn geti eitthvað sagt til um hvort hún sé trygg. Vonandi er þetta ekki of mikið af spurningum.