heilbrigðisstefna til ársins 2030.
Virðulegi forseti. Eins og ég geri stundum með frumvörp sem tengjast ekki beint í minni nefnd, þá kíki ég, sem nefndarmaður í fjárlaganefnd, oft á kaflann um mat á áhrifum. Þegar um stefnu er að ræða, sem er einmitt mikið rætt um í tengslum við fjármálaáætlun, finnst mér nauðsynlegt að benda á að stefna stjórnvalda er líka lögð fram í fjármálaáætlun. Og af hverju þarf ég að ítreka það? Það er af því að í kaflanum um mat á áhrifum segir, með leyfi forseta:
„Ráðgert er að henni muni fylgja aðgerðaáætlun til fimm ára sem verður endurskoðuð árlega á meðan stefnan er í gildi. Ekki er búist við að stefnan ein og sér, án aðgerðaáætlunar, leiði til aukins kostnaðar eða hafi önnur áhrif …“
Svo er í lok kaflans sagt:
„… gera má ráð fyrir að einstakar aðgerðir krefjist utanaðkomandi ráðgjafar sem leiði til tímabundins kostnaðar sem ætti að rúmast innan fjárheimilda ráðuneytisins.“
Það er í rauninni ekki gert ráð fyrir því að grunnstefnan, tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu, leiði til neins aukins kostnaðar.
Vandamálið er að við glímum augljóslega við heilbrigðiskerfi sem vantar fjármagn. Og ástæðan fyrir því að ég segi það er ég var búinn að vera að vinna með fjármálaáætlun og í henni vantar fjármagn í nákvæmlega þá málaflokka sem hér á fjalla um, og þá helst vegna hjúkrunarheimila.
En í fjármálaáætluninni, sem er líka stefna stjórnarinnar, eru aðgerðir stjórnvalda settar fram. Árið 2023 vantar 1,1 milljarð í rekstur hjúkrunarheimila miðað við þau heimili sem eru í byggingu, og árið 2024 vantar 3,5 milljarða. Það vantar einfaldlega í fjármálaáætlunina.
Sagt er að það muni rúmast innan fjárheimilda ráðuneytisins. En hverjar verða fjárheimildirnar þá? Verða þær ekki hærri af því að stefnan er að setja ákveðnar auknar kröfur? Miðað við núverandi aðgerðir vantar pening, þannig að ég sé ekki að matið á áhrifunum sé rétt. Að sjálfsögðu kostar þetta einhvern pening, kannski tímabundið vegna uppbyggingarinnar, en kannski varanlega.
Þegar ég skoða stefnu reyni ég alltaf að finna hvernig aðstæður verða þegar stefnunni er lokið. Hvert verðum við komin þá? Í fylgiskjali með stefnunni er einfaldlega sagt: Hver verður staðan 2030? Það er mjög hentugt og alls ekki algengt að finna í svona skjölum. Þar eru talin upp tíu atriði sem mér finnast ekki lýsa nákvæmlega því vandamáli sem við stöndum frammi fyrir núna, að við verðum búin að leysa það vandamál þá. Vissulega er sagt að það verði rétt þjónusta á réttum stað og ýmislegt svoleiðis jákvætt og talað um að laga mönnunarvandann og því um líkt. En mönnunarvandinn er einmitt núna. Það er líka hægt að glíma við hann í fjármálaáætluninni, í aðgerðaáætluninni sem þar er.
Vandamálið sem við stöndum frammi fyrir er einmitt skortur á heilbrigðisstarfsfólki, t.d. hjúkrunarfræðingum og fleiri stéttum innan heilbrigðiskerfisins. Það gerir það að verkum að á nýjum hjúkrunarheimilum sem opnuð hafa verið hérna að undanförnu, vantar hjúkrunarfræðinga. Það vantar hjúkrunarfræðinga til að geta opnað fleiri rými. Hægt var að opna 10 af um 40 hjúkrunarýmum, ekki fleiri af því að það vantaði fleiri hjúkrunarfræðinga. Það er búið að byggja. Það er allt til reiðu til að glíma við fráflæðisvandann sem er á Landspítalanum, en það er ekki hægt að opna þessi rými af því að það vantar hjúkrunarfræðinga. Það vantar líka hjúkrunarfræðinga á Landspítalann þannig að það eru ýmsar deildir lokaðar, ýmis rými þar, af því að ekki er hægt að koma sjúklingunum út, eða þeim sem ekki eru lengur sjúklingar, þeim sem eru í fráflæðinu, eru á batavegi og þurfa léttari aðstoð eða annars konar rými en eru á Landspítalanum. Þetta fólk er fast á Landspítalanum í miklu dýrara úrræði en það myndi vera á hjúkrunarheimili af því að það vantar hjúkrunarfræðinga.
Þetta er vandamál í báðar áttir. Það þarf fleiri hjúkrunarfræðinga á Landspítalann til þess að sinna þessu fólki sem ekki kemst út af Landspítalanum í ódýrari rými þar sem er pláss en ekki hjúkrunarfræðingar. Við lendum í svona hringavitleysu þar. Ég átta mig ekki alveg á því af hverju ekki er hægt að flytja fjármagnið frá dýrara úrræðinu öðrum megin að einhverju leyti í ódýrara úrræðið hinum megin, til þeirrar lausnar sem liggur fyrir til þess að létta á.
Þar hefur verið bent á að vandamálið sé að laun hjúkrunarfræðingana séu lægri á hjúkrunarheimilum þannig að þeir fari frekar til Landspítalans, sem vantar vissulega líka hjúkrunarfræðinga, þetta er ekki alveg fullkomið. Þeir komast í rauninni aldrei inn. Og vegna þess að það vantar það marga hjúkrunarfræðinga þá festast þeir í rauninni allir á Landspítalanum eða í álíka stöðum sem borga betur en hjúkrunarheimilin. Lausnin við þessum fráflæðisvanda verður aldrei til fyrr en launin hækka annaðhvort fyrir þær stöður sem eru á hjúkrunarheimilunum eða fleiri bætast í hópinn.
Sögð var saga af því fyrir síðustu fjármálaáætlun eða fjárlög þar sem forstöðumaður deildar á Landspítalanum, sem þoldi ekki ástandið lengur, sagði: Ég ætla að ráða tíu hjúkrunarfræðinga í viðbót. Skilaboðin sem hann fékk voru: Já, endilega, gjörðu svo vel. Hann auglýsti og auglýsti, þótt ekki væru til peningar, en það skipti ekki máli því að það fannst enginn til að sinna þessum störfum.
Það er vandamálið í hnotskurn hjá okkur. Það vantar hjúkrunarheimili fyrir næstu ár og áratugi, því að fjöldi aldraðra mun aukast mjög mikið eftir árið 2024. Til þess að ná að sinna þeim aðstæðum þarf að byggja upp betri aðstöðu fyrir þann aukna fjölda. Ef við ætlum að geta tekið á móti fólki þá þarf fólk til að sinna þjónustunni þar. Þá mun líka vanta mannskap. Það er ekki nóg bara að byggja hús. Það verður líka að huga að mönnuninni, sem er sett fram í þingsályktunartillögunni og er bara mjög gott. Ég hlakka til að sjá aðgerðaáætlunina þar. En eins og ég bendi á geta aðgerðir stjórnvalda líka komið fram í fjármálaáætlun.
Við stöndum frammi fyrir þessum vanda nákvæmlega núna. Fjármálaáætlun er stefna stjórnvalda til næstu fimm ára. Þar á lausnin líka að vera. Við eigum ekki að þurfa að bíða eftir aðgerðaáætlun, sem þarf þá væntanlega að bíða eftir fjármálaáætlun næsta árs eða lengur, ég veit það ekki.
Í fjármálaáætlun á stefnan að vera sett fram. Þá á að vera búið að gera ráð fyrir þessum kostnaði ef aðgerðaáætlun kemur ekki fram fyrr en seinna og dettur ekki inn fyrr en árið 2021, eða því um líkt, þar sem kemur þá aukinn kostnaður vegna þeirra lagfæringa sem gera þarf með auknum kröfum vegna mönnunar o.s.frv. Það á samt að gera ráð fyrir þeim fjárhæðum í fjármálaáætlun núna.
Það er það sem ég sakna aðallega í þessari annars ágætu heilbrigðisstefnu; mér finnst hún segja of lítið hvað þarf að gera, sem sagt um aðstæðurnar, hver sé stóra myndin. Hvar eru lýðfræðilegu breytingarnar í þessu efni sem við þurfum að ná að fylgja? Hversu mörg hjúkrunarheimili eða háskólasjúkrahúspláss, heilbrigðisstofnanir eða heilsugæslur, lækna og hjúkrunarfræðinga búumst við við að þurfi til að standa undir heilbrigðiskerfinu á þessum tíma? Þá erum við með grunnmyndina af því hversu mikil mönnunin þarf að vera til að ná upp í þetta. Mér finnst vanta aðeins á slík gögn í þessa áætlun, sem er grundvöllurinn að aðgerðaáætlun í framhaldinu, sem setur betur fram þá mælikvarða og markmið sem við sjáum síðan í fjármálaáætluninni. En aftur, það vantar í fjármálaáætlunina.
Ég kvarta undan þessu mati á áhrifum, sem er örstutt og segir að það vanti engan pening í þetta. Miðað við aðstæður núna þá vantar 4,6 milljarða í fjármálaáætlunina, það vantar einfaldlega. Við vitum að það mun kosta þennan pening ef taka á þau hjúkrunarrými í notkun sem verið er að byggja. Það á ekki að skilja þau eftir tóm.
Þannig að þetta tvennt, að þetta kosti ekki neitt — jú, víst, við vitum að þetta kostar eitthvað og við vitum meira að segja að það vantar í núverandi fjármálaáætlun. Það eru þær athugasemdir sem ég hef við þetta mál.