149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

straumar í alþjóðastjórnmálum.

[09:36]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Þarna snýr hæstv. ráðherra algjörlega út úr spurningunni. Væntanlega geta vinstri flokkar í Evrópu starfað að málamiðlunum með hægri flokkum þar líka, jafnvel ógeðfelldum. Ég er ekki að gagnrýna allt sem hér hefur verið gert. Ég tel að það hefði verið hægt að ganga lengra með hreinu vinstra samstarfi. Ég spyr hvort ráðherra telji ekki að svo sé og hvort henni finnist líklegast að ná öllu fram í samstarfi með Sjálfstæðisflokknum. Ég minni á að formaður flokksins greiddi atkvæði gegn lögum um þungunarrof kvenna á dögunum og þar að auki hefur flokkurinn lagt fram mjög ómannúðlegt frumvarp varðandi útlendingamál.

Ég hlýt að ítreka spurninguna: Eru önnur lögmál á Íslandi en annars staðar í Evrópu? Hefði ekki verið hægt að hrinda þessum breytingum öllum með skýrari hætti fram með hreinni vinstri stjórn? Þá er kannski rétt að minnast á auðlegðarskatt, auðlindagjöld og auðvitað hærri fjármagnstekjuskatt, sem er lágur á Íslandi (Forseti hringir.) í samanburði við flestar aðrar Evrópuþjóðir.