149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

útflutningur á óunnum fiski.

[10:08]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef heyrt umræðu um þessi efni, um vandkvæðin sem kunna að skapast af því að á stundum geti verið um of mikinn útflutning að ræða fyrir tiltekinn hluta fiskvinnslunnar í landinu. Á því máli eru hins vegar ýmsar hliðar. Útgerðir af öllum stærðum, sérstaklega þó, hefði ég haldið, litlar og meðalstórar, njóta þess líka í afkomu sinni ef verð á mörkuðum er hátt. Ég hef heyrt af því að það séu líka erlendir kaupendur sem eru að kaupa fisk til útflutnings á íslenskum mörkuðum þannig að viðfangsefnið að leggjast yfir er nokkuð flókið. Ef veruleikinn er sá að við sjáum mjög miklar breytingar í fiskvinnslunni og fækkun starfa hér á landi er sjálfsagt mál að taka þetta til skoðunar. En ég hlýt að nefna í þessu sambandi að þetta er samspil ólíkra þátta. Ég veit t.d. til þess, þótt ekki væri nema út frá minnstu útgerðunum, að þær hafa notið þess að verð hefur stigið á sumum tegundum öðru hvoru, fer það mest eftir framboði og eftirspurn á markaði.

Til að svara spurningu hv. þingmanns, um það hvort ég hafi tekið málið upp við þrjá samráðherra mína, höfum við ekki gert það með neinum ákveðnum hætti. Við höfum rætt þetta, sumir hverjir, á hlaupum en ekki sest yfir verkefnið á formlegum fundi eða neinu því um líku. Í mínum huga er viðfangsefnið ekki orðið það stórt að það kalli á ítarlega greiningu.