149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

útflutningur á óunnum fiski.

[10:10]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég verð að vera ósammála honum um að hér sé ekki um þá stærð af vandamáli að ræða að við þurfum að leggjast yfir það. Við sjáum í sjávarþorpunum að þetta skiptir máli.

Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra — setjum sem svo að hæstv. ráðherra leggist yfir málið og átti sig á stöðunni — hvort honum finnist koma til greina að styrkja fiskmarkaðina, sem eru afskaplega mikilvægir, á einhvern hátt, t.d. með því að skylda að fjórðungur afla fari í gegnum markaðinn. Þá er meira úr að moða og myndast ekki jaðarverð eins og er að gerast núna á mörkuðunum. Eða hvort setja mætti fram einhvers konar hvata til þess að afli sé fullunnin hér á landi komi það í ljós, sem ég held að sé raunin, að virðisaukinn (Forseti hringir.) og plúsinn fyrir þjóðarbúið er mun meiri ef við fullvinnum fiskinn hér á landi