149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

útflutningur á óunnum fiski.

[10:11]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Já, þetta hefur komið upp öðru hvoru í gegnum tíðina. Við þekkjum sennilega flest hér inni, sem fylgst höfum með sjávarútvegi, umræðuna um álagið á gámafiskinn, útfluttan fisk. Nú er umræðan um að kaup erlendra aðila á íslenskum fiskmörkuðum skekki samkeppnisstöðu íslenskrar fiskvinnslu. Það leiðir hugann að því að ef við ætlum að fara að skylda enn meiri afla inn á fiskmarkaðinn hvort við ætlum þá á sama tíma að setja takmarkanir fyrir því hverjir geti verslað á fiskmörkuðum. Eitt leiðir af öðru í þessu samhengi og ég legg áherslu á að þegar við ræðum þessa þætti verðum við að skoða bæði útgerðarháttinn og fiskvinnsluna í heildarsamhengi við það með hvaða hætti við ætlum að stuðla að verðmætasköpun innan lands, sem allir eru sammála um, en ekki síður hvernig við ætlum að tryggja að við fáum hæsta mögulega verð fyrir hráefnið sem við sækjum úr sjónum hverju sinni. Það er grundvallaratriði.