149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[10:49]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti ætlar ekkert að gefa hv. þingmönnum ráð um það hvernig þeir greiða atkvæði í þessari atkvæðagreiðslu. Forseti horfir á dagskrá sem samanstendur af 46 málum og var forseti, þótt bjartsýnismaður sé, ekki viss um að okkur myndi nægja tíminn fram til kl. 20 í kvöld til að klára þá löngu dagskrá, taldi þar af leiðandi augljóst mál að þörf væri á því að hafa heimild til lengri fundar. Við sjáum svo til hvernig þeirri umræðu miðar.

Hér er um að ræða fyrri umr. um þingsályktunartillögu og þó nokkurt rými fyrir alla þingmenn að nýta ræðurétt sinn samkvæmt þingsköpum þó að fundur stæði ekki nema eitthvað inn á kvöldið.