tilkynning.
Forseti. Ég tel nokkuð ljóst að við klárum ekki alla þessa dagskrá á stuttum tíma enda er þriðji orkupakkinn aftur kominn á dagskrá. Það er því augljóst að þetta mun ekki klárast. Þetta snýst um það að við ræðum hér á eftir endurskoðaða fjármálastefnu vegna breyttra forsendna í efnahagslífinu. Það er risastórt mál og augljóst að við þurfum tíma til að ræða það. Það er enginn að tala um neitt málþóf. Við erum að tala um eðlilegan tíma til að ræða fjármálastefnu. Þess vegna finnst mér mikilvægt, þegar ég greiði atkvæði um lengdan þingfund, að ég viti hvað ég er að fara að greiða atkvæði um. Á fundi með forseta áðan kom fram að þetta ætti bara að ræða hér í alla nótt og ég vil fá það opinbert og staðfest ef svo er.
Lítur forseti svo á að breytt fjármálastefna sé eitthvert smámál sem ekki krefjist umræðu? Mér heyrist nefnilega að það hafi bara átt að taka örfáa klukkutíma í að ræða þetta mál. Er það ætlun forseta að umræðan um stefnuna og öll mikilvægu málin á dagskrá fari fram í skjóli nætur? Það er alveg hægt að semja við okkur um að hafa eðlilega umræðu í dag og svo eitthvað fram eftir kvöldi, klára fyrir miðnætti, halda svo áfram í stuttan tíma á morgun og klára umræðuna svo málin geti farið í nefnd. Við þurfum ekki að vera lengi að því en ég greiði atkvæði gegn því að fara að ræða þetta í alla nótt. Mér finnst það bara vera ruddaskapur.