tilkynning.
Forseti vekur athygli á því að nefnt mál er svokallað dagsetningarmál. Í lögum um opinber fjármál er gert ráð fyrir því að fjármálaáætlun sé afgreidd að vori þannig að fjárlagafrumvarp geti komið fram að hausti byggt á samþykktri fjármálaáætlun og til að hún fáist nú afgreidd þarf að taka inn þessa tillögu um breytta fjármálastefnu þannig að það tvennt geti farið saman. Forseti nálgast þetta með því hugarfari að setja fremst mál sem augljóst er að Alþingi þarf að afgreiða á þessu vori á undan öðrum sem hugsanlega mættu bíða.
Forseti minnir á að umræðutími um þingsályktunartillögur í fyrri umr. er tíu mínútur og fimm mínútur fyrir hv. þingmenn þannig að mikill fjöldi þingmanna getur fullnýtt ræðurétt sinn á nokkrum klukkutímum, ekki satt? Forseti áttar sig ekki alveg á af hverju menn ganga út frá því að þessi umræða lendi inn í nóttina.