149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

tilkynning.

[10:54]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við gerum ekki ráð fyrir neinu öðru en því að hér séu viðhöfð almennileg vinnubrögð. Þau eiga að vera á þann veg að fjármálastefna ríkisstjórnarinnar, ekki síst endurskoðuð, sé rædd hér að degi til þó að ég hafi ákveðinn skilning á því að ríkisstjórnin vilji helst gera það í skjóli nætur.

Úr því að ágætislíkur eru á því, því miður, að hæstv. forseta verði ekki haggað hér og við tökum þetta inn í nóttina langaði mig til þess, ef hægt er, að fá úr því skorið, svo að enginn vafi leiki á, að ráðherrar verði viðstaddir þessa umræðu. Það hlýtur að gefa augaleið að ef einhvern tímann er þörf á því að þeir sitji hér og eigi samtal við þingsal um fjármálastefnu er það þegar staðan er sú sem hún er nú að verið er að endurskoða glænýja fjármálastefnu þar sem ríkisstjórnin lét hjá líða að hlusta á varúðarraddir í fyrstu tilraun.